forsíða
fréttir
ferilskrá
keramík
hugarflug
uppskrift
bollar
english
|
|
Mér hefur alltaf þótt mjög skemmtilegt að hanna drykkjarílat, glös og bolla. Það er tengist trúlega því
hve notalegt og afslappandi mér finnst að setjast niður og helst með fallegan bolla eða glas og svala
brýnustu þörfinni, þörfinni fyrir vökva. Sama hvað er kaffi, te, vatn eða vín það getur verið nærandi að
gefa sér smá tíma og njóta þessarar hverdagslegu athafnar. Finna ilminn, skoða litinn, finna hvernig bollinn
eða glasið fer í hendi njóða bragðsins og upplifa áhrifin.

Uppáhaldsbollinn minn er sá sem ég hannaði fyrir sýningu sem haldin var í samnrorræna sendiráðinu í Berlín.
Þemað var kynjahlutir og samskipti huldufólks og manna í íslenskum þjóðsögum. Ég vann bolla fyrir vinstri hönd
annars vegar og hægri höndi hins vegar. Það fylgja líka álög bollunum. Þegar menn drekka úr vinstri handar bollanum
skerpist sköpunargjáfan og innsæi og skynjun eflist. Ef fólk drekkur hins vegar út hægri handar bollanum eflast
skipulagshæfileikarnir til muna. Þetta helst í hendur við víxlverkun heilahvelanna!!
|