fréttir__


forsíða

fréttir

ferilskrá

keramík

hugarflug

uppskrift

bollar

english


Tvær og ein - Gerðasafn
Sýningin "tvær og ein"í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni verður opnuð 17. maí og stendur til 8. júni. Við erum þrir listamenn sem sýnum í húsinu; Ólöf Einarsdóttir vinnur í textil, Kristín Geirsdóttir málari og ég með keramik lágmyndir og skúlptúra. Um verkin >>

Í anda Alvars AAlto - Norræna húsið
Sýning sem ég tek þátt í á 40 ára afmæli Norræna hússins og heitir "í anda Alvars AAlto" og verður í Hönnunarsafni Íslands og mun standa frá júlí til september.

100% Design í Tokyo
Sýning sem ég tek þátt í í Tókýó í haust heitir 100% Design og verður frá 30. okt - 3. nóv 2008

European Glass Context 2008
Glerlínan var valin á European Glass Context 2008 sem verður haldin á Bornholm í haust. Henni verður stillt upp í Epal á næstu dögum hún til sölu í verslunninni og einnig í Leifstöð.

Verk í 38 þrep
Nýlega hengdi ég upp lágmyndir og skúlptúra í skóverslunnini 38 þrep við Laugarveg. Þau verk vann ég í Japan árið 2004 og eru unnin úr leir með innbrenndum ljósmyndatransferum.

Hægt að kaupa verk í London
Núna hægt verður að nálgast (kaupa, kaupa) hluti eftir mig í London! Í Gallery DESIGN CENTRE KNIGHTSBRIDGE sem er staðsett á besta stað við Hyde park í London og verður starfrækt af íslenskri konu!!! Gallerýið verður opnað nk. laugardag með partý og stæl. Sjá www.designck.co.uk

Island Kultur - Stokkhólmur
Ég var valin til þáttöku í sýningu og uppboði sem fer fram í núna september ISLAND KULTUR í Stockholms Auktionsverk, ásamt öðrum íslenskum listamönnum og hönnuðum. Frú Vigdís Finnbogadóttir opnar sýninguna og er búist við að hún fá heilmikla kynningu í Svíþjóð. Á sýningunni eru 145 verk eftir 41 listamenn og hönnuði. Sjá www.auktonsverket.se

Þátttaka í European Ceramic Context
Kristín er þátttakandi stórri keramiksýningu; European Ceramic Context 2006 sem haldin verður á Bornholm í Danmörku og opnar 8.sept nk. Þátttakendur eru 140 frá 28 Evrópulöndum sjá nánari upplýsingar á www.ceramic2006.com

Kristín á CAEN Parc Expo í Frakklandi
Einng mun Kristín ásamt öðrum rekstraraðilum Kirsuberjatrésins taka þátt í stórri sölusýnigu í Frakklandi, í september: CAEN Parc Expo.
Þar verður Ísland heiðursland sýningarinnar, ýmis kynna fyrirtæki rekstur sinn. Einnig munu ýmsir íslenskir menningarviðburðir vera haldinir í sambandi við sýninguna.
Sjá nánar á www.caen-expo-congres.com og www.foireinternationaledecaen.com

Bloggið í Japan
Sögur frá dvölinni í Japan - bloggið ->

París - Washington - Japan
Ég var valin til að taka þátt í sýningu íslenskra hönnuða í Vía gallery í París frá 1. apríl til 29. maí. Sýningastjórar eru Steinunn Sigurðardóttir og Páll Hjaltason.

Var einnig valin til þátttöku í sýningunni Nordic Cool í Washington sem verður sett úpp í National Museum of Women in the Arts. Á þá sýningu veru valdir hönnuðir (konur) af Norðurlöndunum sem hafa gert áhugaverða hluti.

Ég kem til með að dvelja í Japan í þrjá mánuði á árinu við Shigarki Ceramic Cultural Park. Þar Gefst mér tækifæri til að kynnast japanskri keramikhefð, verða fyrir áhrifum og nýta mér þá frábæru vinnuaðstöðu sem er á staðnum. Kem til með að taka þátt í afmælissýningu hjá Handverk og hönnun sem mun vera sett upp víðsvegar um landið á árinu.


stúdíó subba   |   hamraborg 1   |   554 5075   |   895 9556   |   kristin[at]subba.is