forsíða
fréttir
ferilskrá
keramík
hugarflug
uppskrift
bollar
english
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
.jpg) |
.jpg) |
.jpg) |
Munnblásin glerglös og karöflur.
Hannað af Kristínu Sigfríði Garðarsdóttir og framleidd í Póllandi
fyrir studó subbu!
Ég fékk fyrst tækifæri til að blása gler þegar ég var sem
skiptinemi í Konstfack skólanum í Stokkhólmi. Mér fannst
glerverkstæðið bjóða mig velkomna inn í heillandi heim, veröld sem
var svo framandi og spennandi ekki síst vegna þess að ég hafði
ekki rekið nefið í neitt líkt því áður. Man að mér fannst mér
ekkert miða áfram og bles eins og físibelgur í nokkrar vikur. Á
glerverkstæðinu var alltaf funhiti, þannig að það rann af manni
svitinn við púlið. Ég hafði ekki áttað mig á öllu vökvatapinu sem
líkaminn verður fyrir og var einhverju sinni næstum liðið yfir mig
og ég sem hélt það væri af geðshræringunni yfir fljóandi glerinu!!
Ég var svo heppin þarna í Konstfack að ná góðu sambandi við
deildastjórann í glerstúdióinu sem var hörku kennari frá New York.
Hún var afar umdeild af nemendum í skólanum, en þá kom sér
ágætlega að skilja ekki vel sænskuna!. Ég fekk algjörlega að leika
lausum hala á svæðinu sem var alveg geggjað.
Eftir að ég lauk náminu hér heima og fluttist til Danmerkur fór ég
í keramik og glerdeild við Danmarks design skólann. Þar tók ég
nokkra kúrsa á glerverkstæðinu og hitti fyrir annan amerískan
kennara. Hann var nú ekki alveg eins umburðarlyndur ...... en
góður kennari engu að síður. Hann hélt fast í sína nemendur og
vildi helst ekki hleypa þeim of mikið í aðrar deildir. Ég var
gjörsamlega klofin í herðar niður því ég var líka alveg spennt
fyrir gifsverkstæðinu í skólanum og togaði það fast. Þannig að það
má segja að ég hafi verið eins og jójó á milli hæða um nokkurn
tíma. Síðan tók ég ákvörðun og varð keramík fyrir valinu. Ég hef
aldrei séð eftir þeirri ákvörðun því að í þeirri veröld sem
leirinn skapar finn ég góðan stað sem passar mér vel.
|
|