um verk Kristínar__


forsíđa

fréttir

ferilskrá

keramík

hugarflug

uppskrift

bollar

english


Ragna Sigurđardóttir, listfrćđingur og gagnrýnandi skrifar um verk Kristínar:

Kristín Sigfríđur Garđarsdóttir vinnur ađ list sinni bćđi í leir og gler. Í leirnum er snertingin og áferđin mikilvćgur ţáttur en leirmunir hennar eru međal annars undir áhrifum frá Japansferđum á undanförnum árum, ţar sem aldagamlar vinnuađferđir hafa veriđ henni innblástur. Leirinn sjálfur, vinnuađferđin og brennslan eru mikilvćgir ţćttir í sköpun Kristínar sem međal annars hefur brennt muni sína í japönskum viđarbrennsluofnum. Gleriđ lćtur hún blása fyrir sig eftir nákvćmum fyrirmćlum en einnig hér er hitastig og tímasetning órjúfanlegur hluti af endanlegu listaverki.

Form skúlptúra Kristínar eru lífrćn og mjúk en einnig sígild, einföld og formföst, sum ţung og massíf, önnur létt og leikandi. Áferđ leirsins skiptir miklu, mött eđa glansandi, hrjúf eđa slétt og á ríkan ţátt ađ skapa áhrif endanlegra listaverka. List Kristínar er rík ađ mannlegri nálćgđ sem birtist ma. í ljósmyndum sem brenndar eru í leirinn. Myndir af fingrum og höndum, munnum og augum skapa fínleg mynstur og minna á hlutverk listarinnar sem samskiptatćki en einnig á japanska hefđ ţar sem mikil alúđ er lögđ viđ smáatriđi.

Kristín vinnur á fjölbreyttan hátt bćđi skúlptúra, lágmyndir og nytjahluti. Litrík augnablik daganna eru henni innblástur eins og birtist í glermunum sem búa yfir óvćntum eiginleikum, kunna ađ dansa en missa aldrei jafnvćgiđ. Formiđ gefur til kynna möguleikann á leikandi hreyfingu, samspili notanda og hlutar.

Í verkum sínum kann Kristín ţá list ađ virkja áhorfandann til ţátttöku, hvort sem ţađ er međ ţví ađ láta fingur falla í gróp á leirbolla, bjóđa glasi upp í dans eđa eiga ţögult samtal viđ muni sem vekja upp spurningar um hlutverk – hvort ertu, skúlptúr eđa skál?

Á ţennan hátt vinnur Kristín list sína í takt viđ strauma og stefnur innan samtímalistarinnar ţar sem mörkin milli listgreina hafa á undanförnum áratugum orđiđ ć óljósari, ţar međ talin mörkin milli hönnunar og fagurlista. Hún nálgast list sína af lifandi leik sem fćr áhorfandann til ađ virđa gripi hennar fyrir sér frá fleiri en einu sjónarhorni, fagurfrćđi, notagildi og hönnun eru í fyrirrúmi en ekki síđur menning ólíkra heimshorna og mannleg samskipti. Ţannig má líta á list hennar sem samskiptatćki í takt viđ tímann, ţverfaglegt og alţjóđlegt í senn.


stúdíó subba   |   hamraborg 1   |   554 5075   |   895 9556   |   kristin@subba.is